Fundur 4. mars 2026
Wednesday, March 4, 2026 18:15-19:30, Borgir félagsmiðstöð, Spöngin 43, 112 Reykjavík, Ísland
Speaker(s): Fundur nr. 966 frá upphafi en 21. á starfsárinu
Loftur Már Sigurðsson
sá um skemmtilegan fund 4. mars.
Gestir voru Kristín
Magnúsdóttir og Fanney Þórsdóttir, sjálfboðaliðar sem hafa sinnt Frískapnum
okkar, komið með mat og þrifið skápinn reglulega. Kristín sagði frá störfum
sínum fyrir Hjálræðisherinn en hún sér um frískápinn þeirra sem staðsettur er
hjá þeim. Hún benti á nauðsyn þess að skápurinn snéri að gangstéttinni því hún
kemur reglulega á bíl með mjólk og annan varning. Hún mælti með að koma fyrir
límmiða með aðvörun vegna myndavélar og er ritari að athuga það. Hugmynd kom
fram um hvort Hjálpræðisherinn væri til í að sjá um myndavélaeftirlit fyrir
okkur. Margt var rætt og mjög gagnlegt. Þeim var þakkað fyrir góð störf.
Góðar fréttir:
Elísabet verður fjarverandi um tíma því hún mun leysa af í Neskaupstaðarprestakalli.
Bergljót upplýsti að 9.
apríl munum við heimsækja klúbbinn í Keflavík.
Ásta kynnti haustferina
til Vilnius, höfuðborgar Litháens. 600 - 750 þúsund íbúar. Gamla borgin er á
Unesco lista. Þykir ein best varðveitta miðaldaborg Evrópu og sú stærsta norðan
Alpanna. Sérstakur arkitektúr.
Ferðaáætlun: Föstudagur
4. september. Flogið með Wizzair. Brottflug kl. 17:45. Lending kl. 00:40. Laugardagur:
Bæjarrölt með leiðsögn. Sunnudagur: ½ dags ferð til Trakai. Mánudagur: 7. sept.
Brottflug kl.15:25. Lending 16:45
Í sínum 3 mínútum
sagði Þórunn Kristjánsdóttir frá skemmtilegri siglingu frá Tenerife sem hún fór
nýlega í með viðkomu á nokkrum eyjum og
þar af eyjum þar sem fáir ferðamenn koma. Var það skemmtileg og sérstök
upplifun.
Loftur Már Sigurðsson
sá um fundinn og flutti sjálfur skemmtilegt og fróðlegt erindi sem hann nefndi: "Samsæriskenningar.
Red pill,
blue pill, black pill.
Hvað er
það ?"
Þar kom fram að samsæriskenningar þurfa
að vera sannar, umræðan um þær byrjaði af alvöru 1964 í USA en hún fjölgaði
mjög eftir 2010. Verið er að spyrja réttmætra spurninga. Stutt er í skýringar
eins og um Deep state eða Djúpríkið. Blac pill eftir 2015.
Samsæriskenningar eru þess eðlis að
þegar upp er staðið veit enginn neitt um hvað var sagt eða ekki sagt, hvað var
satt eða logið né heldur hvað snéri upp eða niður. Eitt er víst að Loftur mætti
ekki þó hann væri þarna því hann hélt öðru fram, eða ekki. Frábær fundur.
Á fundinn mættu 15 félagar eða 83%
Geir Agnar
Guðsteinsson sér um næsta fund 11. mars en Eiríkur Arnarson um þrjár mínútur.
Fundarritari: Björn
Viggósson
Registration
The registration deadline has passed