Rótarýklúbbur Rvík
– Grafarvogur
Helstu verkefni
klúbbsins:
Kenýaverkefnið
Verkefnið fólst í því
að setja upp sólarsellur á þak skóla sem er nýbyggður og er bæði skóli og
heimili 40 umkomulausra barna. Sólarsellurnar duga fyrir lýsingu, tölvur,
þvottavél og ísskáp.
Ólafur Halldórsson er
stofnandi Bjartrar sýnar og stjórnandi Takk, heimilisins, sem rekur skólann.
Verkinu lauk 2025 og
kostaði 17.086 dollara eða kr. 2.122.764. Rótarýklúbburinn Borgir Kópavogi, Rótarýklúbbur
Mosfellssveitar, Umdæmi 1360 District Grant og frjáls framlög félaga í Rótarýklúbbi
Rvík- Grafarvogur gerði klúbbnum kleift að ljúka verkefninu fljótt og með sóma.
Geir Agnar Guðsteinsson er að semja grein um verkefnið.
Halló hamingja
Hjálpartæki í baráttu
gegn þunglyndi og kvíða barna og ungmenna. Fjölbreyttir leikir sem ætlaðir eru börnum
á öllum aldri. Hugmyndafræði leikjanna byggist á rannsóknum og reynslu af núvitund,
jákvæðri sálfræði og kennslufræði.
https://rvkgrafarvogur.rotary1360.is/is/content/projects/show/63
Frískápur í Spöng
Árið 2023 kom klúbburinn
fyrir frískáp við Mosaveg, á milli Borgarholtsskóla og Borgarbókasafnsins í
Spönginni. Verkið var unnið í samvinnu við borgaryfirvöld. Tveir kæliskápar eru
í frískápnum og hafa fyrirtæki og stofnanir í hverfinu stutt dyggilega við
framtakið. Tilgangur frískápa er að vinna gegn matarsóun og er öllum frjálst að
nýta þá. Reynslan er góð að öðru leyti en að nokkur skemmdarverk hafa verið
framin af unglingum, að talið er.
https://rvkgrafarvogur.rotary1360.is/is/content/projects/show/64
Skákverðlaun
Klúbburinn hefur styrkt
hina mögnuðu ungu skákmenn Rimaskóla og fært þeim m.a. skákklukkur. Árlega
veitir klúbburinn vegleg verðlaun í skákkeppnum Fjölnis og skólans.
https://rvkgrafarvogur.rotary1360.is/is/content/projects/show/65
Hvatningarverðlaun
til unglinga
Klúbburinn hefur árlega
veitt hvatningarverlaun, fyrst í Rimaskóla fyrir námsárangur á sviði umhverfis-
og samfélagsmála en hin síðari ár til nemenda í Borgarholtsskóla. Í samvinnu
við kennara skólans fá þeir nemendur verðlaun sem sýna eftirtektaverðar
framfarir. Framtakið hefur mælst vel fyrir.
Gróska í
Grafarvogi, umhverfisverkefni, hvatningarverðlaun og gróðursetning
Við stofnun klúbbsins
var samþykkt að taka þátt í fimm ára samfélagsverkefninu ,,Gróska í Grafarvogi“
og styrkja það. Þetta var merkileg uppbyggingar- og forvarnarleið frá fæðingu
barna. Skólar hverfisins, leikskólar, heilsugæsla, lögregla, íþróttafélög og
fjölmörg önnur frjáls félagasamtök stóðu að verkefninu undir stjórn Miðgarðs,
fjölskylduþjónustu í Grafarvogi. Klúbburinn reið á vaðið með að verðlauna
hugmyndasamkeppni sem fram fór meðal nemanda í margmiðlunarhönnun í
Borgarholtsskóla um gerð merkis fyrir verkefnið.
Umhverfisverkefni
Klúbburinn hefur verið í samstarfi við Borgarminjavörð og íbúasamtök
Grafarvogs ásamt fleiri aðilum um merkingu minjastaða í Grafarvogi.
Rótarýlundur í
Gufunesi
Klúbburinn hefur
fengið til umráða svæði til gróðursetningar. Svæðið er á milli
hlöðunnar í Gufunesi og Skemmtigarðsins í Grafarvogi. Félagar klúbbsins
hafa aðstoðað við skipulagningu svæðisins.
Plokkdagurinn
mikli
Rótarýfélagar um land
allt hafa hvatt fólk í sínu nærsamfélagi, nágranna, vini og vinnufélaga til að
taka þátt. Klúbbfélagar hafa verið duglegir í Grafarvogi. Stóri plokkdaginn var
fyrst haldinn að frumkvæði Einars Bárðarsonar, rótarýfélaga, árið 2018.
Lestur á Eir
Í mörg á skiptust
rótarýfélagar á að lesa vikulega fyrir vistmenn á Eir Hjúkrunarheimili. Þetta
mæltist mjög vel fyrir, bæði meðal sjúklinga og starfsfólks.
Skiptinemar
Einn áhrifamesti
þáttur alþjóðaþjónustu Rótarýhreyfingarinnar eru nemendaskipti sem standa til
boða börnum rótarýfélaga jafnt sem öðrum. Skiptinemarnir dveljast eitt skólaár
í landi gestgjafa, á heimilum rótarýmannna eða á öðrum heimilum sem rótarýmenn
velja.
Patric Witcombe frá
Ástralíu dvaldi hjá okkur árið 2004 og Linda Gödeke hluta árs 2005. Pat skrifaði
grein um dvöl sína á Íslandi en hún birtist í Grafarvogsblaðinu í mars 2006 í
þýðingu Björns J. Tryggvasonar. Greinina er hægt að lesa hér á ensku og
íslensku.
https://rvkgrafarvogur.rotary1360.is/is/content/various/show/1149
Alþjóðlegt
hjálparstarf Rótarý
Klúbburinn hefur
tekið virkan þátt í baráttu Rótarý hreyfingarinnar við að útrýma
lömunarveikinni í heiminum. Það verkefni hefur staðið yfir í áratugi og hefur
skilað miklum árangri. Fyrir aldarfjórðungi dóu árlega yfir 300 þúsund
börn víða um heim en nú nokkur hundruð. Til þessa góða
verkefnis greiddi klúbburinn á starfsárinu 2011-12 sem svarar $100 á hvern
félaga.
Rótarýhreyfingin eru
stærstu mannúðarsamtök í heimi og er talin skila mestu til þeirra sem þurfa.
Ástæðan er m.a. sú, að félagsmenn í viðkomandi löndum sjá um að veita aðstoðina
og kostnaður við dreifingu hefur reynst í lágmarki.
Það
er líf og fjör í Rótarý
Ef þú vilt hlúa betur að áhugamálum
þínum þá er svarið hér:
https://rvkgrafarvogur.rotary1360.is/is/content/news/show/1148