Fundur
nr. 947 frá upphafi en 2. á starfsárinu
Miðvikudagur 10. september
2025 í Borgum. Klúbbþing í umsjá stjórnar.
Á fundinn mættu 15 félagar,
76% þátttaka miðað við 21 félaga.
Mætt voru: Bergljót,
Ásta, Bjarni, Björn J. T., Björn V., Eiríkur, Elísabet, Geir, Guðlaug, Hildur,
Jón, Loftur, Ósk, Vala og Þórunn.
Eftir setningu og
góðan mat skýrði Elísabet reikninga síðasta árs. Tekjur og gjöld stóðust á
þrátt fyrir rausnarlegt framlag til Kenýuverkefnisins og í sjóði er um ein milljón
í peningum.
Nefndir funduðu og
skýrðu frá sínum niðurstöðum og hugmyndum:
Viðburðanefnd. Björn T. Jólafundur í
Varmalandi í Borgarfirði. Hópferð til Kenýi eftir 2-3 ár. Hugmynd um að heimsækja
aðra klúbba og fara vorferð í Svefneyjar.
Félagavalsnefnd. Elísabet og Vala. Heimsókn í Lava
Centre. Maður á mann til að fá nýja félaga.
Verkefnanefnd. Þórunn K. Safna fötum.
Fá klúbb í heimsókn. Safna fræjum og gefa. Hugmynd um að halda fundi aðra
hverja viku fékk misjafnar undirtektir.
Klúbbþjónustunefnd: Björn V. sagðist vera að
vinna að gerð kynningarefnis fyrir klúbbinn, m.a. um öll verkefni hans, fyrr og
nú. Sérstök áhersla á Kenýaverkefnið sem Geir er að skrifa um og hallohamingju.is
Rótarýsjóðsnefnd. Ætla að kynna styrktarkerfi Rótarý
á fundi. Hugmynd um að hittast í Árbæjarsafni.
Fundi slitið og farið
með fjórprófið kl. 19.30
Næsti fundur: 10.9.2025
Fundarritari: Björn
Viggósson