Fundur nr. 950 frá upphafi en 5. á starfsárinu
Fundurinn 1. október
var í umsjón Bjarna Kr. Grímssonar.
Á fundinn mættu 12 félagar eða 60 % þátttaka miðað við 20 félaga.
Mættir voru:
Bergljót, Ásta, Bjarni, Björn J. T., Björn V., Eiríkur, Garðar, Guðlaug, Jón,
Kjartan, Ólafur og Vala.
Góðar fréttir:
Guðlaug gjaldkeri komin með heftið eftir langvarandi glímu. Búin að stofna
tölvupóstfang fyrir klúbbinn til að auðvelda upplýsingagjöf á milli ára og
félaga.
Í stað 3 mín. kynnti
Ásta störf ferða- og skemmtinefndar sem leggur til jólalegan kvöldverð í Hótel
Stafholti og gista eina nótt í framhaldinu. Nú er kannað hvort henti betur
29. nóvember eða 6. desember.
Nokkrar umræður urðu
um Umdæmisþingið sem fram fer dagana 10.-11. október í Garðabæ. Berglót, Geir
og Vala munu væntanlega sækja þingið.
Bjarni Kr. Grímsson
sagði frá ferð sinni á alþjóðaþing Rótarý í Ástralíu 2023 en það var
haldið í Melbourne í maí-júní. Bjarni sýndi kvikmynd sem einn ferðafélagi hans
gerði. Á leiðinni höfðu þau viðdvöl og fóru í skoðunarferðir út frá Darwin og
Cairns. Margt fróðlegt að sjá enda Ástralía engu lík.
Fundi slitið kl.
19.30
Fundur 15.10.
fellur niður vegan umdæmisþingsins.
Ásta Þorleifsdóttir
sér um fundinn 22.10. 2025.
Fundarritari: Björn
Viggósson