Fundur nr. 953 frá upphafi en 8. á starfsárinu
Fundurinn 29.10. 2025
var í umsjón Björns Viggóssonar.
Jón Þór Sigurðsson sá
um þrjár mínútur. Hann sagði góðar sögur úr Suðursveit en þaðan rekur hann
ættir sínar. Hann las síðan upp tvö kvæði úr Bréfi til Láru eftir
meistara Þórberg Þórðarson.
Á fundinn mættu 12 félagar
eða 60 %: Bergljót, Bjarni, Björn J. T., Björn V., Eiríkur, Geir, Guðlaug, Jón,
Kjartan, Ólafur, Vala og Þórunn.
Gestur var Jón Karl
Ólafsson sem færði Bjarna Grímssyni fágæta Rótarýorðu en báðir eru þeir fyrrverandi
Umdæmisstjórar Rótarý á Íslandi.
Kristján Gunnarsson,
fyrrverandi félagi okkar, flutti starfsgreinarerindi og sagði okkur frá þróun
hugbúnaðarfyrirtækisins LS Retail ehf. og störfum sínum þar. Þetta var fróðleg
frásögn um fyrirtæki sem á rætur sínar aftur til ársins 1986 og hefur lifað af hremmingar
og gjaldþrot. Í dag er fyrirtækið alþjóðlegt, öflugt og í eigu Goldman Sachs. Hjá
fyrirtækinu starfa um 300 manns og er það með yfir 100 þúsund viðskiptavini í
um 157 löndum. Meðal viðskiptavina á Íslandi eru Bónus, Krónan, Leifsstöð, Lyf
og heilsa, OLÍS, Miklatorg (IKEA) og ÁTVR. Á alþjóðavettvangi má nefna
vörumerki á borð við Adidas, SPAR, DFDS, Scandlines, AS Roma, JYSK, Juventus,
Apoteksgruppen og Victoria‘s Secret.
Fundi slitið kl.
19.30. Næsti fundur: 5.11. 2025 verður í umsjón stjórnar.
Fundarritari: Björn
Viggósson