Fundur nr. 961 frá upphafi en 16. á starfsárinu.
Við heimsóttum
málmsmiðjuna Teknís ehf. í Hafnarfirði á síðasta fundi þann 21. janúar. Þar tók
félagi okkar, Jón Þór Sigurðsson, vel á móti okkur en hann er framkvæmdastjóri og
eigandi þessa ágæta fyrirtækis.
Við fengum
kennslustund hjá þrem reynslumiklum sérfræðingum í málmsuðu, logsuðu, plötuskurði
og að lokum var okkur sýnt hvar Davíð keypti ölið með því að kengbeygja þykkar S355
stálplötur.
Eftir fróðlega
kynningu var vel útilátnum veitingum gerð góð skil.
Á fundinn mættu 14 félagar eða 70 % og þrír gestir, Arnór Valdimarsson,
Guðbergur Björnsson og Sigurður Harðarson.
Næsti fundur verður í
umsjón Kjartans Eggertssonar en Björn Jakob Tryggvason sér um 3 mínútur.
Fundarritari: Björn
Viggósson