Miðlun

miðvikudagur, 15. apríl 2026 18:15, Nóatún 1
Fyrirlesari(ar):

Árni Zophoníasson

Árni Zophoníasson

Fundur nr. 971 frá upphafi en 26. á starfsárinu.

Miðvikudaginn 15. apríl heimsóttum við Miðlun í Nóatúni 17 í Reykjavík. 

Þar fengum við höfðinglegar móttökur. Árni Zophoníasson, stofnandi fyrirtækisins, sagði okkur frá ákaflega spennandi sögu þess. Hann hefur rekið fyrirtækið nánast allt sitt líf en það hefur tekið miklum breytingum. Gott dæmi um síbreytilegan heim.

Umjónamaður fundarins var Björn Jakob Tryggvason.

Sjá nánar: https://midlun.is/

Við heimsóttum Rótarýklúbb Keflavíkur fimmtudaginn 9. apríl 2026 á Park Inn Hótel í Reykjanesbæ en fundurinn 1. apríl féll niður.

Erindi flutti Sævar Kristinsson og kynnti bók sína Síungir karlmenn sem fjallar um ráð til að njóta lífsins á öllum aldri. Sævar, sem er Rótarýfélagi, las upp úr bókinni hluta af 45 góðum ráðum fyrir karla til að lifa lífinu lifandi.

Kjartan flutti greinargóða kynningu á Kenýaverkefni okkar.

Maturinn var úr efstu hillu og tókst fundurinn með ágætum.

Á fundinn mættu 6 félagar eða 33 % með tveim mökum sem björguðu mætingunni.

Fundarritari: Björn Viggósson


Skráning

Skráningarfrestur er liðinn