Hvatningaverðlaun í Borgarholtsskóla

þriðjudagur, 10. febrúar 2026

Geir A. Guðsteinsson

Hvatningarverðlaun í Borgarholtsskóla

Árlega eru veitt verðlaun til nemenda sem sýnir lofsverðar framfarir að mati kennara skólans og er þá ekki átt við einkunnir einar sér.

Verðlaunahafinn árið 2025 var Ingibjörg Jakobína Jónsdóttir, en Ingibjörg er einstaklega duglegur námsmaður sem hefur sýnt miklar framfarir í námi síðustu annirnar. Þrátt fyrir erfiðar aðstæður hefur hún alltaf sýnt alveg einstaklega jákvætt hugarfar og fallega framkomu. Hún hefur einnig staðið sig frábærlega í tengslum við félagslíf nemenda en síðustu tvö ár hefur hún haldið utan um Japansklúbb skólans sem hittist í hverri viku og með fjölbreyttar og skemmtilegar uppákomur. Ingibjörg er útskrifuð sem grafískur hönnuður.

Félagar í Rótarýklúbbi Rvík. Grafarvogi óska Ingibjörgu velfarnaðar.

Hvatningarverðlaun í Borgarholtsskóla