Fundur 19. nóvember

miðvikudagur, 19. nóvember 2025 18:15-19:30, Borgir félagsmiðstöð, Spöngin 43, 112 Reykjavík, Ísland
Fyrirlesari(ar):

Vinsamlegast svarið Já / Nei

Fundur nr. 956 frá upphafi en 11. á starfsárinu

Fundurinn 19.11. 2025 var haldinn í Borgum í umsjón Guðlaugar Sigurðardóttur.

Kjartan Eggertsson notaði sínar 3 mínútur til að segja frá Ættfræðinámskeiði sem hann sækir þessa dagana á vegum Endurmenntunar HÍ. Fróðlegt og gagnlegt námskeið fyrir Kjartan því hann fékk í arf að ganga frá miklu ættfræðiriti eftir föður sinn en áður hafði hann lagt hönd á plóginn við frágang á riti um móðurætt sína.

Ásta flutti góðar fréttir af Jólahlaðborðinu 29.11. og upplýsti að verðið yrði innan við kr. 30.000 á munn.

Fráveitumál á Íslandi - erum við eftirbátar annarra þjóða í umhverfislegu tilliti?   

Björgvin Jón Bjarnason, forstjóri Hreinsitækni, flutti áhugavert erindi um fyrirtækið og starfsemi þess. Fyrirtækið var stofnað 1976 og er nú með 170 starfsmenn og árlegar tekjur eru um 5.5 milljarðar. Björgvin upplýsti að víða væri verk að vinna á sviði umhverfis- og frárennslismála.

Á fundinn mættu 14 félagar eða 70% þátttaka miðað við 20 félaga.

Fundi slitið kl. 19.30

Fundarritari: Björn Viggósson    

 

Dagskráin:

26. nóvember Þórunn Kristjánsdóttir, 3 mín. Stjórnin

29. nóvember Jólahlaðborð Stafholt

  3. des Fellur niður

10. des Valfríður Möller



Skráning

Skráningarfrestur er liðinn