Fundur nr. 957 frá upphafi en 12. á starfsárinu
Fundurinn í Borgum 26. nóvember var
í umsjón Þórunnar Kristjánsdóttur.
Á fundinn mættu 15 félagar eða 75%
þátttaka.
Gestur: Anna Bjarney Sigurðardóttir
Góðar fréttir: Ásta sagði frá vel
heppnaðri Grafarvogsgöngu.
Bergljót forseti upplýsti að
klúbburinn greiddi kr. 7000 fyrir hvern félaga vegna Jólahlaðborðs.
Geir mun fara í Borgarholtsskóla og
kynna kr. 70.000 styrk frá okkur.
Hildur Jónsdóttir var fyrirlesari og
fjallaði um Sigurhæðir sem eru fyrsta samhæfða þjónustan við þolendur
kynbundins ofbeldis í sunnlensku nærsamfélagi. Soroptimistaklúbbur Suðurlands
er frumkvöðull að stofnun Sigurhæða.
20 Soroptimista kvennaklúbbar eru á
landinu. Samkvæmt rannsóknum hafa 40% ísl kvenna orðið fyrir kynbundnu ofbeldi.
Sigurhæðir bjóða áfallameðferð í hópum eða einstaklingsmeðferð. Þetta er samfélagslegt
verkefni með 23 samstarfsaðilum um allt suðurland. Meiri aðsókn en reiknað var
með eða um 400 konur frá upphafi eða á 5 árum.
Lykilatriðin: Tími
það dýrmætasta. Tími Traust Trúnaður
Hildur er með BA gráðu í frétta- og
blaðamennsku frá Danmarks Journalisthöjskole og stundaði síðar nám í
stjórnsýslufræðum. Hún hefur stýrt fjölda verkefna, innlendra, norrænna og
evrópskra. Hún var jafnréttisráðgjafi Reykjavíkurborgar 1996-2006 og starfaði
þar á eftir við jafnréttismál og menningarmál innan félagsmálaráðuneytis,
forsætisráðuneytis og mennta- og menningarmálaráðuneytis um tíu ára skeið.
Hildur er fyrrverandi formaður Jafnréttisráðs og sérfræði- og samhæfingarteymis
um mansal. Meðal verkefna sem hún hefur stýrt eru Karlar í fæðingarorlofi, Hið
gullna jafnvægi (um samhæfingu starfs og einkalífs), Framtíð í nýju landi
(meðal innflytjenda) og verkefni um samþættingu kynja- og jafnréttissjónarmiða
inn í fjárlagagerð. Þá var hún formaður og aðalhöfundur Jafnlaunastaðals.
Fundi slitið kl. 19.30