Fundur nr. 958 frá upphafi en 13. á starfsárinu.
Fundur í umsjón
ferðanefndar: Björn Jakob Tryggvason formaður, Ásta Þorleifsdóttir starfsmaður
í fullu starfi, Eiríkur Arnarson og Hildur Árnadóttir.
Jólahlaðborð 2025
Stefnan verður tekin
á Hótel Stafholt. Gisting, glæsilegt jólahlaðhlaðboð og snafs í morgunmat.
Jólaskapið allan tímann.
Hist við
fjölbrautaskólann í Mosfellsbæ kl. 14 og sameinast í bíla. Komið við á
jólamarkaðnum á Hvanneyri eða á geitabúinu Háafelli þar sem gáfuðu
landnámsgeiturnar eru. Líklegt að við stoppum við Deildartunguhver.
Munið sundföt fyrir
heita pottinn. Stjörnubjart og norðurljós.
Samtals 23 eru
bókaðir. Geir 1, Ásta og Unnur twin, Begga mætir +1, Garðar mætir +1, Kjartan
mætir +1, Eiríkur mætir +1, Þórunn mætir +1, Guðlaug mætir +1, B Tryggva mætir
+1, Ólafur +1, Elísabet + 1, Bjarni Gríms +1.
Vinsamlegast
skráið í Polaris þar sem ritari verður ekki með í för.
Ath.
Fundurinn 3. desember fellur niður.
Næsti fundur 10. desember.
Umsjón Valfríður Möller: Ísól Björk Karlsdóttir kemur og segir okkur allt um
Kvennaathvarfið. 3 mín. Geir Agnar Guðsteinsson
Fundurinn í Borgum 26. nóvember var
í umsjón Þórunnar Kristjánsdóttur.
Á fundinn mættu 15 félagar eða 75%
þátttaka.
Gestur: Anna Bjarney Sigurðardóttir
Góðar fréttir: Ásta sagði frá vel heppnaðri
Grafarvogsgöngu.
Bergljót forseti upplýsti að
klúbburinn greiddi kr. 7000 fyrir hvern félaga vegna Jólahlaðborðs.
Geir mun fara í Borgarholtsskóla og
kynna kr. 70.000 styrk frá okkur.
Hildur Jónsdóttir var fyrirlesari og
fjallaði um Sigurhæðir sem eru fyrsta samhæfða þjónustan við þolendur
kynbundins ofbeldis í sunnlensku nærsamfélagi. Soroptimistaklúbbur Suðurlands
er frumkvöðull að stofnun Sigurhæða.
20 Soroptimista kvennaklúbbar eru á
landinu. Samkvæmt rannsóknum hafa 40% ísl kvenna orðið fyrir kynbundnu ofbeldi.
Sigurhæðir bjóða áfallameðferð í hópum eða einstaklingsmeðferð. Þetta er
samfélagslegt verkefni með 23 samstarfsaðilum um allt suðurland. Meiri aðsókn
en reiknað var með eða um 400 konur frá upphafi eða á 5 árum.
Lykilatriðin: Tími
það dýrmætasta. Tími Traust Trúnaður
Fundarritari: Björn
Viggósson