Heilbrigðismál

miðvikudagur, 11. febrúar 2026 18:15-19:30, Borgir félagsmiðstöð, Spöngin 43, 112 Reykjavík, Ísland
Fyrirlesari(ar):

Garðar Jónsson

Fundur nr. 964 frá upphafi en 19. á starfsárinu

 

Fundurinn 11. febrúar  2026 var í umsjón Garðars Jónssonar og flutti hann erindi sem hann nefndi: Nýir straumar við gæðastjórnun í heilbrigðisþjónustu.

Garðar strarfar sem gæðastjóri hjá Heilbrigðisstofnun Vesturlands (HSV) sem er með mjög margar starfsstöðvar. Hann tók þátt í að þýða og staðhæfa nýjan alþjóðlegan gæðastaðal, ISO 7101, sem er sérstaklega gerður fyrir heilbrigðisþjónustu og er að innleiða staðalinn í samráði við starfsfólkið. Svo sannarlega áhugavert efni sem varðar marga.

 

Góðar fréttir: Hildur sagði frá ævintýsraferð sinni til Tansaníu þar sem hún gekk á Kilimandscharo sem er hæsta fjall Afríku og er á UNESCO-heimsminjaskrá.

Guðlaug okkar var 4 sekúndur frá stórslysi. Mikil hætta var á Brussel-flugvelli þegar flugstjóri ætlaði að hefja þotu SAS til lofts á akbraut í stað þess að fara inn á flugbraut. Flugvélin hafði náð yfir 200 kílómetra hraða þegar henni var nauðhemlað. Farþegar sluppu vel frá atvikinu en þotan nam staðar skammt frá fjölda eldfimra eldsneytistanka.

 

Í sínum 3 mínútum sagði Björn Viggósson frá vinnu sinni við að vélrita 8 vinnudagbækur sem afi hans lét efir sig. Í bækurnar er skráð vinna tveggja dráttarbáta árin 1909-1928. Flutt var fólk, vörur, verkfæri, salt, kol, hey, hross, kýr og annar búféðnaður. Dagbækurnar varpa skemmtilegu ljósi á athafnasvæði bæjarbúa og lífæðin var sjórinn. Auk þess að sinna þjónustu við stækkandi skipaflota án viðunandi hafnaraðstöðu þá sinnti hann þjónustu vegna heyskapar á Kjalarnesi, Laxárvogi og eyjunum á Kollafirði.  Einnig var hann mikið í fólksflutningum og um tíma má segja að hann hafi rekið Viðeyjarferju.

Á fundinn mættu 13 félagar eða 65% 

Athugið að næsti fundur fellur niður en Ólafur Ólafsson sér um fundinn 25. febrúar en Elísabet Gísladóttir um 3 mínútur.

Fundarritari: Björn Viggósson


Heilbrigðisstofnun Vesturlands.


Skráning

Skráningarfrestur er liðinn