Fundur nr. 965 frá upphafi en 20. á starfsárinu
Á fundinn 25. febrúar
kom Jóhann Steinar Ingimundarson formaður UMFÍ og flutti ljómandi gott erindi
um sambandið. Það spannar 25 íþróttahéruð og 480 íþróttafélög, sinnir umhverfismálum,
íþrótta- og félagsstarfi. Starfstöð er í Reykjavík, á Sauðárkróki og starfræktar
eru skólabúðir að Reykjum í Hrútafirði en þangað koma árlega um 3600 nemendur
frá 95 skólum og dvelja þar frá mánudegi til fimmtudags.
Gildin endurspeglast
í ungmennafélagsandanum sem felur í sér að bæta sjálfan sig og samfélagið um
leið. Jóhann Steinar er gamall Rótarýfélagi í Görðum í Garðabæ.
Góðar fréttir: Bókasafnið
á Seltjarnarnesi þáði gamlar bækur sem Kjartan gaf þeim. Björn Jakob T. fór í
fyrsta skipti í fótsnyrtingu og getur mælt með því. Vala sagði frá ánægjulegri
veislu sem hún hélt fyrir dóttur sína sem var að ljúka námi við þriðju háskólagráðuna.
Hún bauðst líka til að útvega ódýrt og gott rauðvín og hvítvín. Ástu og
Bergljótu tókst að senda inn umsókn í verkefnasjóð Rótarý. Ásta og Björn T.
kynna fljótlega fyrirhugaða haustferð vegna afmælis klúbbsins.
Í sínu 3ja mínútna erindi
flutti Elísabet athyglisverða og þarfa hugvekju um sálgæslu. Hún ræddi um samúðarþreytu
og kulnun. Samkvæmt rannsóknum er talið að við fáum 60-80.000 hugsanir á hverjum
degi og þar af eru 85-90% sömu hugsanirnar. Því er mikilvægt að temja sér
jákvæðar hugsanir og hafa ber sérstaklega þrennt í huga: 1. Að vera vel meðvitaður
um hvað við hugsum. 2. Að við erum ekki fullkomin. 3. Að flétta hugleiðslu og núvitund
inn í daglegt líf og venjur.
Næsti fundur verður 4.
mars og sér Loftur Már Sigurðsson um fundinn.
Á fundinn mættu 12
félagar eða 60%
Fundarritari: Björn
Viggósson