Beint frá býli

miðvikudagur, 25. mars 2026 18:15-19:30, Borgir félagsmiðstöð, Spöngin 43, 112 Reykjavík, Ísland
Fyrirlesari(ar):

                    Eyjólfur Ingvi Bjarnason     

Eyjólfur Ingvi Bjarnason og Guðbjört Lóa Þorgrímsdóttir með tvö af fjórum börnum sínum.

Fundur nr. 969 frá upphafi en sá 24. á starfsárinu

Fundurinn 25. mars var í umsjón Kjartans Eggertssonar.

Gestir fundarins: Anna Sigurðardóttir, Hjörtur Freyr Garðarsson og Guðberg Björnsson.

 

Á fundinn kom Eyjólfur Bjarnason, bóndi í Ásgarði í Hvammssveit í Dalabyggð. Hann er í stjórn sveitarfélagsins og Bændasamtakanna. Eyjólfur stendur fyrir nýsköpun í landbúnaði, þar á meðal sölu afurða beint frá býli. Heimilið er stórt því þau hjónin eiga fjögur börn og eru með 3 fósturbörn.

Hann hélt gott starfsgreinarerindi enda maður með reynslu. Fjölskylda hans eignaðist jörðina 1810 og er hann af 8. kynslóð ábúenda. Jörðin er 2000 ha. og er vel í sveit sett með um 400 fjár og vaxandi grænmetisrækt.

Hann er sérfræðingur í kynbótum og hefur starfað sem ráðunautur um land allt. Honum hefur tekist að auka arðsemi búskaparins á flestum sviðum. Ekki veitir af því síðustu ár hafa verið landbúnaðinum mjög erfið. Hann er samt bjartsýnn og telur að betri tíð sé í vændum. Í lokin bað hann okkur öll um að tala fallega um bændur og störf þeirra. Það var vel mælt.

Ef þið akið vestur þá er sjálfsali niðri við veg þar sem hægt er að kaupa góðar vörur beint frá býli.

 

Góðar fréttir: Klúbburinn fékk kr. 1 milljón úr verkefnasjóði Rótarý. Félagar eru beðnir um að koma til Ástu ábendingum um hvar þörf er á upplýsingaskiltum í Grafarvogi. Klúbbfélagar hafa sett upp nokkur sem gefist hafa vel.

Enn og aftur er búið að skemma kæliskápana í Frískápnum. Flokkast undir slæmar fréttir.

3 mínútur hélt Eiríkur Arnarson og sagði frá furðulegri reynslu í ferð til Danmerkur. Gestgjafi hans var nýlega búinn að fá sér rafmagnsbíl og lenti í miklum hremmingum þegar kom að því að fá hleðslustöð heim. Niðurstaðan var sú að versla við nýtt raforkufyrirtæki sem setti allt upp fyrir hann eftir þriggja mánaða bið og með fylgdi sérstakur rafmagnsmælir fyrir bílinn. Það rafmagn er niðurgreitt sem aðeins viðurkennd fyrirtæki geta fengið!

 

Næst heimsækjum við Rótarýklúbb Keflavíkur fimmtudaginn 9. apríl 2026, kl. 18:00-19:30 á Park Inn Hótel, Hafnargötu 57, 230 Reykjanesbæ.

Staðfesta þarf mætingu þrem dögum fyrir fundinn. Makar eru velkomnir. Maturinn kostar kr. 4.500 og borgar hver fyrir sig.

Fundurinn 1. apríl fellur niður.

Fundarritari: Björn Viggósson

 


Skráning

Skráningarfrestur er liðinn