Fundurinn 18. mars var
í umsjón Hildar Árnadóttur.
Góðar fréttir: Forseti
minnti á að taka frá tíma í Golfmót Rótarý á Akranesi 30. júní. Sjá fréttabréf.
3 mínútur sá Valfríður
Möller um: Á fundi 4. febrúar sagði Vala okkur frá hjartaþræðingu sem hún fór í
og reyndist meiri en gert var ráð fyrir. Vala var lengi með einkenni og var
hársbreidd frá því að fá hjartaáfall. Hún var heppin að sleppa með skrekkinn.
Síðan hefur Vala kynnt
sér þessi mál og sagði núna frá mörgu mjög athyglisverðu, s..s. dulum einkennum
kransæðaþrenginga. Ýmis einkenni koma fram hjá konum og körlum sem eru að mörgu
leyti ólík. Sameiginlegt einkenni er minnkandi súrefnisflæði til hjartans sem oftast
er nokkuð augljóst hjá körlum en erfiðara er að greina hjá konum. Þetta er nokkuð
falið vandamál, sérstaklega hjá konum.
Ragnar Guðgeirsson,
eiginmaður Hildar, sagði frá nýlegri ferð þeirra hjóna til Tyrklands og
Istanbúl og fræddi okkur um hárígræðslumeðferð sem hann fór í.
Ragnar byrjaði á
skemmtilegri frásögn um heimsókn þeirra til þessa stóra og fjölmenna lands með
86 milljón íbúa og lét vel af kynnum þeirra.
Þá tók við merkileg
frásögn um hárígræðslu sem framkvæmd er af þekktum lækni á þessu sviði sem rekur
þrjár stofur í Tyrklandi og eina í Los Angeles og nýtur vaxandi vinsælda meðal
landa okkar. Fram kom að aðgerðin kostar kr. 560.000 og er þá allt innifalið
nema flugið.
Þetta var ekki alveg
þrautalaust en vel þess virði að sögn Ragnars. Fluttir voru 3800 hársekkir og aðgerðin
tók 7 tíma. Notuð var staðdeyfing og þetta er bara handavinna, einn hársekkur
tekinn í einu! Hann þurfti að fara mjög gætilega í nokkra daga, sárin voru horfin
eftir 12 daga og reiknað er með að fullum bata sé náð á 5-6 mánuðum. Býsna
fróðlegt erindi.
Á fundinn mættu 12
félagar eða 67%.
Gestur var: Björgvin
Bjarnason.
Fundi var slitið kl.
19.30.
Næsti fundur: 25. 3. 2026
verður í umsjón Kjartans Eggertssonar en Eiríkur Arnarson sér um 3 mínútur.
Takið frá
fimmtudaginn 9. apríl en þá munum við heimsækja Rótarýklúbbinn í Keflavík.
Fundurinn 8. apríl fellur.
Fundarritari: Björn
Viggósson