Fundur 11. mars

föstudagur, 6. mars 2026 18:15-19:30, Borgir félagsmiðstöð, Spöngin 43, 112 Reykjavík, Ísland

Fundur nr. 967 frá upphafi en 22. á starfsárinu

Fundinum 11. mars 2026 var stjórnað af Kjartani því Bergljót forseti vor var í fríi.

Góðar fréttir: Geir sagði frá frábærum tónleikum í Hörpu. Björn Tryggvason og ný stjórn bíða spennt eftir að tvöfalda fjölda félaga á næsta starfsári. Ásta hvatti félaga til að bóka flugið til Vilinius  4.-7. september. Þeir sem ætla á Rórarýmótið bóka bara með fyrra flugi því flogið er tvisvar í viku.

Nokkur umræða varð um Frískápinn. Eiríkur fór fyrr um daginn og lagaði til, m.a. var búið að brjóta hillur. Björn V mætti með nýjar hillur og setti aðvörunarlímmiða þar sem segir að upptaka sé í gangi. Fram kom nokkur þreyta vegna endurtekinna skemmda.

Í sínum 3 mínútum sagði Eiríkur Arnarson frá kostulegu uppátæki Reykjavíkurborgar til að gera húseigendum lífið enn erfiðara. Lífferilsgreining húsa er lausnin. Nú skulu öll hús lífsferilsgreind, ný sem gömul. Fáir skilja ósköpin en ljóst er að húseigendur þurfa að ráða sjálfbærnisstjóra, sjálfbærniráðgjafa og ráðgjafa til að tala við sérfræðingana og verkfræðistofuna fyrir sína hönd áður en verktaki er ráðinn til að byggja hús. Eða þannig, sko ……..

Leynigestur var nágranni okkar, Guðlaugur Þór Þórðarson alþingismaður, sem kom með skömmum fyrirvara þar sem auglýstur ræðumaður boðaði forföll. Guðlaugur Þór kom víða við og flutti fjörlega tölu, aðallega um kosti og ókosti þess að ganga í Evrópusambandið. Talið er að unga fólkið muni ráða úrslitum enda vant því að opna pakka.

Á fundinn mættu 13 félagar eða 72%.

Næsta fund 18. mars sér Hildur Árnadóttir um og Valfríður Möller fer með 3 mínútur. Stjórnarfundur verður kl. 17.00.

Takið frá fimmtudaginn 9. apríl en þá munum við heimsækja Rótarýklúbbinn í Keflavík.

Fundarritari: Björn Viggósson


Skráning

Þessi viðburður er aðeins fyrir þá sem hefur verið boðið, vinsamlegast hafið samband við skipuleggjandi viðburðarins